Fréttir

Látinna ástvina minnst á allra heilagra messu

Sunnudaginn 2.nóvember, allra heilagra messu, verður guðsþjónusta með altarisgöngu kl 11. Prestar eru sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs. Á allra heilagra messu er látinna minnst og er aðstandendum boðið að kveikja á kertum í minningu látinna ástvina. […]

By |2008-10-28T14:56:47+00:0028. október 2008 | 14:56|

Guðsþjónusta með altarisgöngu og afmælisbörn mánaðarins í sunnudagaskólanum

Sunnudaginn 26.október, sem er 23.sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 11. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs en með henni þjónar Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni. Organisti er Ásta Haralds. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri er Ásdís Arnalds. Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. […]

By |2008-10-21T15:13:38+00:0021. október 2008 | 15:13|

Tónlistarmessa – Góðir gestir í heimsókn

Tónlistarguðsþjónusta verður haldin sunnudaginn 12.okt. kl.11 í Fella- og Hólakirkju. Þýskur kór og kór kirkjunnar flytja fjölbreytta kirkjutónlist. Stjórnendur kóranna eru Ásdís Arnalds og Heinrich Langelan. Einnig mun Jóhann Stefánsson trompetleikari spila og Hilmar Örn Agnarsson organisti Fella- og Hólakirkju. Sr. Svavar Stefánsson prédikar. . […]

By |2008-10-09T09:03:59+00:009. október 2008 | 09:03|

Fjölskylduguðsþjónusta með afmælisbrag

Sunnudaginn 5.október verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Prestar eru sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs. Listasmiðjan Litróf, undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur verður með atriði. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Vegna 20 ára vígsluafmælis kirkjunnar hafa leikskólabörn sóknanna komið í heimsókn til okkar í vikunni og hlökkum við til að fá þau og fjölskyldur þeirra til [...]

By |2008-09-30T14:37:23+00:0030. september 2008 | 14:37|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli

Sunnudaginn 28.september, sem er 19. sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður guðsþjónusta kl.11. Prestur er Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur. Organisti er Ástríður Haraldsdóttir og kór Fella-og Hólakirkju, undir stjórn Ásdísar Arnalds leiðir almennan safnaðrsöng. Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. Við heyrum biblíusögu dagsins, það verður mikið sungið og afmælisbörn mánaðarins fá afmælisgjöf […]

By |2008-09-24T14:32:17+00:0024. september 2008 | 14:32|

Messa og sunnudagskóli kl 11.00

Sunnudaginn 21.september, sem er 18.sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður messa kl. 11.00. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og kór Fella-og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma, með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá. […]

By |2008-09-17T11:12:03+00:0017. september 2008 | 11:12|

Fjölskylduhátið sunnudaginn 7.september

Við fögnum við upphaf barnastarfs að hausti og höldum fjölskylduhátíð. Sunnudaginn 7.september verður fjölskyldumessa kl. 11.00. Sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs þjóna, en með þeim verður starfsfólk barnastarfsins og Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina. Í vetur er yfirskrift barnastarfsins; ,,Þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera“ (Matt 6.21) [...]

By |2008-09-03T15:22:37+00:003. september 2008 | 15:22|

Messa kl.11.00 sunnudaginn 31. ágúst

Sunnudaginn 31.ágúst, sem er 15. sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður messa kl. 11.00. Prestur er sr. Svavar Stefánsson, en Sigríður Rún Tryggvadóttir, æskulýðsfulltrúi prédikar og þjónar með honum. Organisti er Sigrún Steingrímsdóttir og kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng. […]

By |2008-08-27T15:14:36+00:0027. ágúst 2008 | 15:14|
Go to Top