Fréttir

Guðsþjónusta sunnudaginn 26.nóvember kl. 11

Guðsþjónusta eldri borgara, sunnudaginn 26. nóvember kl. 11 Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar, undirleikari er Arnhildur Valgarðsdóttir og Árni Ísleifsson. Félagar úr eldri borgarastarfinu taka virkan þátt með lestri ritningarlestra og bæna. Prestar og djákni kirkjunnar þjóna og predika. Boðið upp á veitingar að messu lokinni.  Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Péturs og [...]

By |2017-11-22T10:15:55+00:0022. nóvember 2017 | 10:15|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 14. nóvember

Við ætlum að bregða undir okkur betri fætinum og heimsækja vini okkar í Grafarvogskirkju. Lagt af stað rétt fyrir kl. 13 með rútu.  Við ætlum að eiga söngstund saman, hlýða á erindi frá sr. Örnu, spila og að lokum er okkur boðið upp á kaffi og meðlæti. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og [...]

By |2017-11-12T23:06:59+00:0012. nóvember 2017 | 23:06|

Fermingarbörn safna fyrir vatni

Um 2600 fermingarbörn um allt land ganga í hús þessa vikuna og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Framlag fermingarbarna er risastórt en í fyrra söfnuðu þau um átta milljónum króna. Áður en börnin ganga í hús fá þau að kynnast þróunarsamvinnu Hjálparstarfs kirkjunnar í fermingarfræðslunni. Þau fræðast um aðstæður fólks sem býr [...]

By |2017-11-08T13:29:58+00:008. nóvember 2017 | 13:29|

Kristniboðsdagurinn – Fjölskylduguðsþjónusta

Sunnudaginn 12. nóvember verður fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni. Umsjón með stundinni hafa sr. Guðmundur Karl Ágústsson, Pétur Ragnhildarson, Ásta Guðrún Guðmundsdóttir, Kristín Gyða Guðmundsdóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir organisti. Kristín Gyða Guðmundsdóttir segir frá starfi Kristniboðsfélagsins í Eþíópíu. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá, allir velkomnir. Kristniboðsdagurinn er næstkomandi sunnudag, 12. nóvember. Rúm 80 ár eru síðan farið var að [...]

By |2017-11-08T11:15:36+00:008. nóvember 2017 | 11:15|

Jól í skókassa á foreldramorgni

Fimmtudaginn kl. 10 verður foreldramorgunn í kirkjunni, að þessu sinni verður tekið þátt í verkefninu Jól í skókassa (www.kfum.is/skokassar). Kristín og Jóhanna hafa umsjón með samverunni og bjóða upp á kaffi, meðlæti og gott samfélag.

By |2017-11-08T11:10:46+00:008. nóvember 2017 | 11:08|

Guðsþjónusta 5. nóvember kl. 11

Allra heilagra messa, minning látinna. Á sunnudaginn verður guðsþjónusta og barnastarf í kirkjunni kl. 11. Prestar kirkjunnar þjóna, kór kirkjunnar leiðir almennan söng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Stúlknatríó úr Domus Vox syngur í guðsþjónustunni. Allir velkomnir.

By |2017-11-01T13:53:10+00:001. nóvember 2017 | 13:37|

Karlakaffi föstudagsmorgun 24.nóvember kl. 10 – 11.30

Föstudaginn 24. nóvember kl. 10-11.30 Gestur okkar er Ögmundur Jónasson alþingismaður og fyrrum innanríkisráðherra. Ögmundur ætlar að spjalla um lífið og tilveruna á efri árum. Láttu sjá þig  við tökum hlýlega á móti ykkur Starfsfólk Fella- og Hólakirkju    

By |2017-11-26T23:09:38+00:0025. október 2017 | 11:36|

Guðsþjónusta sunnudaginn 29. október Siðbótadagurinn

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl 11:00 Siðbótadagurinn.  Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Högni Gunnar Högnason leikur Back á selló, organisti Arnhildur Valgarðsdóttir og kór kirkjunnar syngur. Umsjón með sunnudagaskólanum Pétur og Ásta. Meðhjálpari og kirkjuvörður Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Kaffisopi eftir messu.

By |2017-10-24T12:27:06+00:0024. október 2017 | 12:27|

Eldri borgarastarf þriðjudag 24. okt

Allir velkomnir í kyrrðarstund kl. 12:00  Kristín Kristjánsdóttir djákni og Arnhildur Valgarðsdóttir organisti sjá um stundina. Boðið er upp á súpu og brauð  á vægu verði. Við eigum ljúfa samveru saman, spilum prjónum og spjöllum.  Allir velkomnir

By |2017-10-22T19:26:33+00:0022. október 2017 | 19:26|
Go to Top