Fréttir

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 1. október kl. 11:00

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Pétur og Ásta hafa umsjón með stundinni ásamt sr. Guðmundi Karli Ágústssyni. Arnhildur organisti spilar á píanó og við fáum fiðlunemanda í heimsókn frá tónskóla Sigursveins. Viktoría gleður okkur og við syngjum saman. Verið hjartanlega velkomin. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir

By |2017-09-28T14:43:48+00:0028. september 2017 | 11:39|

Krílasálmar í Fella- og Hólakirkju 12.október til 9.nóvember 2017

Krílasálmar í Fella- og Hólakirkju 12.október til 9.nóvember 2017 Krílasálmar er 5. vikna tónlistarnámskeið fyrir börn á fyrsta ári, 3ja - 18 mánaða og foreldra þeirra. Krílasálmar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Markmið námskeiðsins er að  styrkja tengslamyndun og örva börnin þar sem tónlist er notuð. Það er spilað á hljóðfæri og sungið fyrir þau, [...]

By |2017-09-22T18:05:25+00:0022. september 2017 | 18:05|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudaginn 24. sept. kl. 11

Guðsþjónusta og fundur með fermingabörnum og foreldrum þeirra. Kynnt verður fyrirkomulag fermingarfræðslunnar í vetur. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar ásamt sr. Guðmundi Karli Ágústssyni. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Jóhann Örn Thorarensen leikur a fiðlu. Pétur og Ásta taka á móti börnunum í sunnudagaskólann á sama tíma. Viktoría kemur í heimsókn og [...]

By |2017-09-19T11:52:04+00:0019. september 2017 | 11:40|

Skráning í fermingarfræðslu 2017-2018

Skráning í fermingarfræðslu 2017-2018 hefst miðvikudaginn 20. september, en þá eiga væntanleg fermingarbörn að koma í Fella-og Hólakirkju og skrá sig í fermingarfræðslu. Fellaskóli (allir bekkir) koma miðvikudaginn 20. september kl. 15. Hólabrekkuskóli bekkur 81 kemur miðvikudaginn 20. september kl. 15:30. Hólabrekkuskóli bekkur 82 kemur miðvikudaginn 20. september kl. 16. Þá fer fram skráning og [...]

By |2017-09-18T11:02:23+00:0018. september 2017 | 11:02|

Fyrirbæn og djúpslökun alla þriðjudaga kl. 17.30 – 18.30

Jóga nidra djúpslökun og fyrirbænastund alla þriðjudaga. Kristín djákni byrjar stundina með fyrirbæn, hægt er að skrifa bænir í bænabók áður en stundin hefst. María leiðir okkur inn í kyrrðina og hvíldina þar sem andinn vex og umvefur. Gott að koma í hlýrri peysu og hlýjum sokkum og taka jógadýnu með sér. Teppi og koddar [...]

By |2017-11-22T10:07:55+00:0017. september 2017 | 13:16|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 19. sept

Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12:00 síðan fáum við okkur súpu og brauð. Ástvaldur Traustason er gestur okkar í dag. Hann segir okkur frá því af hverju hann gerðist Zen munkur. Kaffi og kruðerí á sínum stað og framhaldssagan. Eigum góða stund saman, við tökum hlýlega á móti öllum. 

By |2017-09-17T13:08:10+00:0017. september 2017 | 13:08|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudaginn 17. september

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Jóhann Örn Thorarensen fiðlunemandi frá Tónskóla Sigursveins leikur á fiðlu. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Kaffi og djús eftir stundina. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir Verið hjartanlega velkomin

By |2017-09-12T10:21:45+00:0012. september 2017 | 10:21|

Flott viðtal við sr. Jón Ómar

Gott viðtal við nýja prestinn okkar sr. Jón Ómar Gunnarsson í helgarblaði Fréttablaðsins. Hér er hægt að lesa viðtalið á þessari slóð:  http://www.visir.is/g/2017170908851/thurfum-a-gudi-ad-halda-

By |2017-09-12T17:08:32+00:0011. september 2017 | 09:33|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 12. september

Eldri borgarastarf alla þriðjudaga frá kl. 12:00 til 16:00. Við spilum, prjónumog skemmtum okkur saman. Á morgun kemur Svava Kristín Ingólfsdóttir söngkona til okkar kl. 13:00. Við tökum hlýlega á móti öllum. Verið velkomin

By |2017-09-11T09:29:42+00:0011. september 2017 | 09:29|
Go to Top